Halló halló,
Jæja, þessi dagur var bara ágætur.
Ok, ég byrjaði á deginum með því að vakna, fór með mömmu uppí
vinnu því við vorum víst morgunhanarnir í morgun. Mamma vildi bara
fá smá félagsskap en svo voru bara góð not af mér=) Þannig við
unnum og unnum. Svo bauð mamma mér í mat=) Rosa gott. Svo héldum
við bara áfram þangað til hálf 3.
Þá fórum við heim, ég þvoði á mér hárið og fór svo á
leikinn.
Fjölnir-Njarðvík í 9 fl. kk. Litlu kútarnir stóðu sig bara mjög vel
og voru alveg í rassgatinu á Fjölni. Haukur tróð ekki fyrir Heiðu,
hann sem ætlaði að gera það. Enn strákarnir töpuðu með 11 stigum
held ég, er ekki viss. Andri og Ólafur Helgi stóðu sig bara mjög
vel, laang bestir af mínu mati=). Enda frændur mínir
nee segi
svona.
Enn eftir leikinn fórum við stelpurnar heim til ömmu í
bollukaffi. Maður nottla fékk bollu. Sigrún Inga, Biggi og Jökull
voru þarna, gvuuuð hvað hann er mikið krútt. Pínkulítill, já Jökull
er hundur. 
Enn ég fór í partý til Önju í gær, Rosa gaman, eitt af því sem
við gerðum var Twister, það var geeðveikt gaman, sérstaklega í
svona flækju. Svo horfðum við á einhverja mynd, ég lá á gólfinu...
leið kannski aðeins of vel, (sofnaði næstum) Enn þetta var ágæt
mynd=) Takk fyrir kvöldið stelpur. Koma nokkrar myndir úr
partýinu.
Enn síðustu helgi kepptum við á ásvöllum í 9. fl. kvk. Og
viti menn, við stóðum okkur svo illa að við duttum niður, ekki
besti tíminn. Við vorum samt skárri á sunnudeginum. Þá kepptum við
á móti Flúðum og Haukum, unnum flúðir (þökk sé Joey
)En töpuðum
fyrir Haukum, stóðum okkur samt vel. Enn við keppum næstu helgi í
kef, og vonandi höldum við okkur uppi=)
Allir að koma og horfa, þ.e.s. ef þið getið það.
Enn það koma nokkrar myndir af kvöldinu í gær
.(seinna)
-Hanna-