HannaBirna=)

Velkommen;)

29.05.2007 17:43:03 / hannavald

-

 

ný síða!!!

 

www.hannabirna.bloggar.is

 

thanks;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 16:34:39 / hannavald

2, sæti.

 

jæja, aldeilis flottur árangur hjá okkur stelpunum.. Unnum flúðir með 3 stigum en töpuðum svo á móti Haukum eiginlega í fyrsta leikhlutanum með 19 stigum. eftir fyrsta leikhluta var staðan 21-3. annars töpuðum við hinum leikhlutunum aðeins með 1 stigi.

 

Svo kvöddum við Jeb, gáfum honum svo rosalega sætt kort. Komu tár hjá honum og þá fóru allar að gráta. aww, svo sætt hehe. Svo fór hann á mánudeginum til þýskalands.

 Strákarnir í 9, fl. kk urðu svo íslandsmeistarar eftir sigur á Fjölni. Greyin höfðu ekki tapað leik í vetur og svo töpuðu þeir aðalleiknum.  Njarðvík átti s.s. 3 íslandsmeistara, meistaraflokkur (b-liðið), unglingaflokkur kk, og svo litlu strákarnir:)

 

Gítarinn; er nánast bara hættur, á einhverja 4 tíma eftir, er búin að vera í einhverju smá fríi því allir hinir krakkarnir eru að taka próf. Fæ að vita hvort ég hafi náð grunnprófinu á skólaslitunum, Vonandi náum við þessu Gugga.

 Laugar eru eftir viku, oh, hlakkar æði mikið til. 3 saman í herbergi, þannig ég, Þórunn og Heiða verðum saman, og gvuuð má vita hvar Anja verður. henni verður örugglega bara troðið hjá okkur, Annars. Anja mín verðuru alltaf velkomin:)

 

annars er ekkert mikið búið að gerast sko...

 

en later duude,,


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 14:51:12 / hannavald

-

já, heheh. var barasta búin að gleyma þessari síðu:P en annars allt gott að frétta. bara búin að vera smá veikindi í gangi. samt alltaf allt það sama, skóli-tónlistarskólinn-æfingar, bara það.

 Karfan: gengur ágætlega bara, erum að fara að keppa á morgun á móti Flúðum og ætlum okkur að vinna þetta. fyrir ári töpuðum við með 1 stigi og þá vorum við í hvítum búningum. Núna eru þær í hvítum búningum og teljum við vera óhappa að vera í hvítum búningum, því alltaf þegar við erum í hvítum þá töpum við. en ef við vinnum leikinn á morgun keppum við á sunnudaginn um íslandsmeistaratitillinn. vonandi nær maður sér í titil=) en annars er ekkert sérstakt búið að gerast.

 

Gítarinn: búin að taka grunnprófið og ekki mikið að gera eftir það, er bara að leika mér eitthvað á gítarinn núna, bara vonandi næ ég þessu prófi.=)

Annars er bara rólegt hjá mér, oog já, kötturinn á víst afmæli í dag. 10 ára kallinn=) hheheh!

Simbi litli.

 

ooog bara Áfram Njarðvík;) tökum þetta stelpur!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 09:29:15 / hannavald

2.apríl.2007.

 

 jæja... þá er ég búin að taka grunnprófið. gekk bara ágætlega.. fyrir utan stressið.
Bergþór Pálson óperusöngvari var prófdómarinn.

Annars er komið páskafrí og allt... og leiðilega... ég er veik. búin að vera veik eiginlega alla helgina.

við vorum að keppa um helgina, s.s. 10. flokkur því við erum fallnar í 9. flokki. en okkur gekk voða vel á laugardeginum og unnum báða.. Snæfell og Keflavík. okkur gekk ekkert alltof vel á sunnudeginum. töpuðum báðum eða fyrir Hrunamönnum og Haukum...  en við erum allavena í 3 sæti og keppum á móti Flúðum. Haukar og Keflavík keppa við hvort annað. Gætu orðið spennandi leikir.. nja. Flúðir var spennandi allan tímann og Keflavík unnu Haukana með 1 held ég.. þannig það getur allt gerst.

 Til hamingju með afmælið elsku pabbi minn;**(L)

farin, bæjó.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 11:27:29 / hannavald

talandi um óheppni!

   

Jæja, ákvað bara að skella inn eitt stykki bloggi, þótt ég hafi ekki hugmynd um hvað ég eigi að skrifa um.

 

Sigrún á afmæli á morgun, en veit ekki hvað við eigum að gefa henni. Einhverjar hugmyndir?

 

Enn á fimmtudaginn fórum við á leikinn  Njarðvík-Fjölnir. Mér fannst þetta leiðilegur leikur og allt hálf hallærislegt í þessu húsi!
Enn það var dregið 10 miða út í skutlukast s.s. sem gekk útá það hver kastaði skutlunni lengst. Það var dregið mæju út en hún lét mig fara. Sá sem vann var fyrstur og ég var síðust, allir voru nottla að reyna að kasta lengra en hann en það gekk ekkert, Svo kom ég og vissi nottla að ég myndi ekkert ná honum. Kastaði ég þá og viti menn! Það var 1,5 cm sem var á milli. Þannig ég tapaði. Og verðlaunin voru ferð fyrir 2 með Iceland Express. Það hefði verið gaman að vinna, ég var eini Njarðvíkingurinn í skutlukastinu. Tekið allt heim til Njarðvíkur. Deildarmeistaratitil, 2 stig, 10 kassa af kók og þetta, tss... allt nema þetta.
Enn Þóra var dregin út til að skjóta fyrir 10 kössum af kók. En hún þorði ekki því Einar Árni bróðir hennar myndi gera grín af henni. Híhí. Svo Sigrún fór og hún var eina sem hitti og fekk því allt. Eða Þóra fékk allt. Við fengum 2 kassa og Þóra fékk hina 8.

Enn Njarðvík vann þennan leik að sjálfsögðu.

 

Enn Það var frí í skólanum í dag, og vitiði hvað ég var að fatta?
minna en mánuður í Grunnprófið:$ obbobbobb.

Enn ég er að ná þeim utanbókar og öllu því sem þarf að gera, þannig ég er á góðri leið. Enn er farin að fá mér að eta,

 bæjó;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 15:01:51 / hannavald

jæja, spurningar...Svara svo!

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?

2. Hve gamall/gömul ertu

3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?

4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?

5. Dreymir þig á nóttunni?

6. Hefuru séð lík?

7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?

8. Ertu að fíla Gogga Bush?

Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffinu.

9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?

10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því.    Hvað
myndi það vera?

11. Treystiru lögreglunni?

12. Hlustaru á kántrí?

13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?

14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?

15. Myndiru deita mig?

16. Í hverju sefuru?

17. Hefuru pissað í sundlaug á meðan þú ert ennþá að synda?

18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?

19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?

20. Hvað finnst þér best um mig?

21. Er ég hot?

22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?

23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?

24. Segðu mér eina heimskulega / tilgangslausa staðreynd um þig.

25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?

 

» 9 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 19:58:49 / hannavald

18,01,'07

Halló halló,

 Jæja, þessi dagur var bara ágætur.

 

Ok, ég byrjaði á deginum með því að vakna, fór með mömmu uppí vinnu því við vorum víst morgunhanarnir í morgun. Mamma vildi bara fá smá félagsskap en svo voru bara góð not af mér=) Þannig við unnum og unnum. Svo bauð mamma mér í mat=) Rosa gott. Svo héldum við bara áfram þangað til hálf 3.

Þá fórum við heim, ég þvoði á mér hárið og fór svo á leikinn.
Fjölnir-Njarðvík í 9 fl. kk. Litlu kútarnir stóðu sig bara mjög vel og voru alveg í rassgatinu á Fjölni. Haukur tróð ekki fyrir Heiðu, hann sem ætlaði að gera það. Enn strákarnir töpuðu með 11 stigum held ég, er ekki viss. Andri og Ólafur Helgi stóðu sig bara mjög vel, laang bestir af mínu mati=). Enda frændur mínir;) nee segi svona.

Enn eftir leikinn fórum við stelpurnar heim til ömmu í bollukaffi. Maður nottla fékk bollu. Sigrún Inga, Biggi og Jökull voru þarna, gvuuuð hvað hann er mikið krútt. Pínkulítill, já Jökull er hundur. ;)

 

Enn ég fór í partý til Önju í gær, Rosa gaman, eitt af því sem við gerðum var Twister, það var geeðveikt gaman, sérstaklega í svona flækju. Svo horfðum við á einhverja mynd, ég lá á gólfinu... leið kannski aðeins of vel, (sofnaði næstum) Enn þetta var ágæt mynd=) Takk fyrir kvöldið stelpur. Koma nokkrar myndir úr partýinu.

 Enn síðustu helgi kepptum við á ásvöllum í 9. fl. kvk. Og viti menn, við stóðum okkur svo illa að við duttum niður, ekki besti tíminn. Við vorum samt skárri á sunnudeginum. Þá kepptum við á móti Flúðum og Haukum, unnum flúðir (þökk sé Joey;))En töpuðum fyrir Haukum, stóðum okkur samt vel. Enn við keppum næstu helgi í kef, og vonandi höldum við okkur uppi=)

Allir að koma og horfa, þ.e.s. ef þið getið það.

 Enn það koma nokkrar myndir af kvöldinu í gær;) .(seinna)

 

 

 

 -Hanna-

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 18:57:41 / hannavald

Loksins orðin 15 ára:)

 

 ohh nýbúin að blogga enn svo bara fór það allt út. Enn ég er orðin 15 ára. Varð 15 þann 1 feb. Rosa stuð

Enn blogga meira síðar, Matur:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 17:08:18 / hannavald

böggandi?

Ég er búin að taka eftir því að mér finnst mjög mikið böggandi eða bara pirrandi! ég ætla að segja 5 þeirra.

-Ef maður á að segja eitthvað við fólk fyrir fólk og manneskjan sem maður á að segja þetta við byrjar að vera með leiðindi og drulla yfir mann útaf því að hann/hún sé ekki sátt/ur með þetta. (don´t kill me,i´m just the messenger.)

-Fólk sem er leiðilegt við aðra útaf einhverju sem gerðist í fortíðinni. .t.d drulla yfir fólk á síðum þeirra og fl. þá bara að segja GROW UP þið eruð ekki lengur í 6 ára bekk.

-Að vera að vinna með 15. stiga mun og tapa leiknum með 1-4 stigum. sérstaklega í Bikarkeppni.

-Að heyra ekki eitthvað og fólk nennir ekki að segja það aftur.

 -Þegar vinur manns tekur einhvern annan fram yfir mann.

enn yfir í annað. Við vorum að keppa í gær. og við vorum að vinna í fyrri hálfleik, staðan var í hálfleik. 25-7 og eftir 1 leikhluta var staðan 15-0. Og við töpuðum samt leiknum. Það var bara meira en svekkjandi og leiðilegt. þannig við erum dottnar út í Bikarnum í 10. fl. kvk. Enn við vorum Bikarmeistarar í fyrra í þessum flokki. ári uppfyrir okkur. Enn við keppum á morgun í 9.fl.kvk. í Hveragerði á móti Hamar og ég virkilega vona svo að við vinnum þennann leik. Ef við töpum honum verð ég virkilega svekkt og fúl.

Enn ný síða var að byrja, www.blog.central.is/-beauties 

Sandra,Elísabet,Þórunn,Heiða,Anja, ég og Gugga vorum að byrja með hana. Verður bara skemmtilegt. Enn það fara bráðum myndir að koma á síðuna=) annars bara!

ÁFRAM NJARÐVÍK!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 23:46:27 / hannavald

20.jan.

Bara að óska Dagmar til hamingju með afmælið;)

hún á afmæli í dag,

 hún á afmæli í dag,

 hún á aaafmææli hún Dagmar 

hún á afmæli í dag:)

 

Til hamingju=) 15 ára pæjan:)

Dagmar;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 14:49:51 / hannavald

16.janúar.


Ég ætla að byrja á því að óska Þóru Kristínu (Stínu) Ottósdóttir til hamingju með afmælið.

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á aaafmælii hún stína
hún á afmæli í dag.

Hún er 15 ára skvísan í dag:)

Stína:)

 

En í annað. Búið að gerast svolítið hjá mér. Er ekkert búin að getað bloggað útaf prófum. já og ég er meira að segja að fara í próf á morgun. í stærðfræði, Algebrukaflanum. tsss..... ohh, svo leiðilegt.

ooog, ég er eiginlega að fá útúr því hvað þetta var í öxlinni. Þetta var sem betur fer ekki Illkynja. Enn þau vita ekkert hvað þetta er! það voru ekki einu sinni frumur í þessu. Vildu meina að þetta hafi einhvernveginn komist inní öxlina. Það sést ekkert á mér einu sinni.

Allt á fullu í gítarnum. Ætla að Reyna að taka Grunnprófið í þetta skipti. Er núna að pikka upp lag fyrir prófið og ég valdi Far away. Það er asskoti erfitt...
Karfan líka á fullt.. búnar að keppa við Fjölni. unnum þær með einhverjum stigum meira en 20 held ég allavena. Það fengu allar að spila mikið og var rosa gaman. Anja skoraði sína fyrstu körfu í leik og þessi elska var ánægð allan leikinn eftir það. Dalrós blokkaði líka skot og læti.
Svaka stuð enn allavena. ég gat ekki sett mynd þannig engin mynd núna. bæti henni kannski við;) enn ég er farin að læra.

 Bæjó;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 22:34:59 / hannavald

2006


jæja.. þá er árið 2006 liðið hjá. Þetta var flott ár fannst mér:) allavena hjá mér:). ég ætla að rifja upp eitthvað sem gerðist á árinu. ekkert í sérstakri röð.


-9. fl. kvenna varð. bikarmeistari. Unnum hauka með einu stigi. :) Þá var Aggi með okkur..

-Sigrún og Sævar byrjuðu saman:)

-Við fórum til spánar í sumar á La Marína, fjölskyldan+Sævar Magnús.

-Sigrún og Sævar hættu saman. Þau voru svo fullkomin saman.

-Ég fór í 9. bekk:)

-ég fermdist.

-Heiða,ég, Dagmar,Erna,ína,Jóhanna og stína fórum á landsliðsæfingar.

- ég fór í 2 aðgerðir á árinu. Eina eyrna aðgerð og eina á öxlinni.

-Heiða frænka flutti í stóra húsið sitt... Hvíta húsið:)

-sumaræfingar hjá Einari Árna. voru 3 stelpur. ég, Heiða og Dagmar.Var samt gaman.

-Dagmar ætlaði til færeyja með gúmmíbát, það varð víst aldrei af því:/

-Anja liggur við flutti til okkar.. var svo oft hjá okkur:)

-Stúlknaflokkurinn hætti deginum áður en mótið var og þá fórum (við) litlu stelpurnar í staðinn.

-Sigrún ein eftir úr stúlknaflokki.  æfir bara með okkur:)

-Jeb og Igor byrjuðu að þjálfa okkur:)

-Við stelpurnar byrjuðum í unglingadeildinni.

-Við byrjuðum að hanga með Guggu:)

-Ég fékk sykurfall:$

-fór í fyrsta skiptið í sjúkrabíl

-Amma greindist með krabbamein. og fór í aðgerð og mátti ekki hreyfa sig í 8 vikur enn auðvitað fór hún á fullt um leið og hún stóð upp.

-Afi rifbeinsbrotnaði. gaman yfir jólin hjá þeim:)

-ég gat ekki verið með á landsliðsúrtaksæfingunum útaf axlaraðgerðinni.:(

-var dregið í bikarnar. Við fengum Fjölni(9 fl.) og Flúðir(10 fl.).

-okkur gekk ekki vel á íslandsmótinu:(

veit ekki hvort það gerðist mikið meira...set bráðum einhverjar  myndir frá árinu.. get það bara ekki núna... tss. þetta picturetrail drasl. enn see you later;)


Endilega kommenta;)


» 18 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 00:14:38 / hannavald

-

                   

                       Kemur blogg bráðum!

Á nýju ári;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 00:53:41 / hannavald

23.12.06

                     GLEÐILEG JÓL KRÚTTIN MÍN(K)


Mér finnst ég vera mjög heppin þessi jól. Mjög ánægð með fjölskylduna mína. Allir heilbrigðir og allt það. Ég

vorkenni samt fólki sem þarf að eyða jólunum sínum á sjúkrahúsi. Maður verður hálf leiður á að heyra það. Enn

ég var í aðgerð í gær. taka einhverja kúlu úr öxlinni.. Það var haldið að þetta væri fitukirtill enn það var ekkert

fitukirtill. Þetta var eitthvað svart. Eins og steinn og grjóthart. ekkert skrítið að mér fannst þetta svo vont.  Enn

Þetta ver í rannsókn eða svona ræktun eitthvað. veit ekki hvað það er. Ég fæ að vita hvað þetta var eftir áramót:)

Þannig núna er ég að drepast í öxlinni. Má kannski ekki fara á þessar landsliðsæfingar og eitthvað kjaftæði.

Vonandi er þetta ekkert alvar legt. enn mér langaði bara að óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári:$

-Hanna Birna-
(sem er ekki komin í neitt jólaskap)


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 15:25:13 / hannavald

6 dagar í jól

já þetta blogg er fyrir hana Guggu mína..:) þér finnst víst svo gaman að lesa bloggin mín um ekki neitt...

 jæja... allt búið að vera á fullu í jólaundirbúningnum. Skreyta, þrífa og svoleiðis.... Enn í dag var svona föndurdagur og náði ég að klára og senda öll jólakortin mín... geðveitk stolt af mér... Risa jólakortalisti. enn ég sendi samt ekki öllum sem ég vildi senda... og t.d. þeim sem ég nennti ekki að senda. Eins og t.d. í öðrum skólum og eitthvað svoleiðis kjaftæði. En ég sendi samt stínu. Enn já nóg af jólakortum. í skólanum í dag var voða fínn matur fyrir krakkana eða svona reykt svínakjöt. rosa flott og mjög gott. Enn annars er bara ekkert mikið búið að gerast hjá mér.. bara svona chill og svona. Enn á eftir er ég að far að kaupa jólafötin.. Enn ég nenni ekki að blogga meira... ste bara eina eða tvær myndir í þetta blogg og svo kannski nokkrar spurningar svona ef þú nennir að svara. ALLAVENA Þú Gugga...!

Image hosting by TinyPic

ooo við vorum svo mikil krútt:)

já heyrðu.. svo rakst ég á þessa hérna mynd! stelpur muniði eftir þessu?

Image hosting by TinyPic good times:)

 - Hvað heitir þú?
 - erum við vinir?
- veistu passwordið mitt á síðuna?
- þykir þér vænt um mig?
- Myndir þú fara með mér í sjúkrabíl uppá sjúkrahús ef eitthvað myndi gerast fyrir mig?

Svona... búið í bili!


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7